| Nýtt: ORTODENT tannburstar |
| |
| Aldurshópar: 0-5 ára og 6-10 ára og fullorðnir. |
| |
| Sölustaðir: Tannlæknastofunni Réttarholtsvegi 3 (Reykjavík), Tannlæknastofunni Háaleitisbraut 1 (Reykjavík), Tannlæknastofunni Spönginni (Reykjavík) og Tannlæknastofunni Hamraborg 10 (Kópavogi). |
| |
 |
Tannburstarnir eru þannig gerðir að innri hárin sjá um tennurnar en ytri hárin um tannholdið. Innri hárin eru miðlungsstíf og sjá því vel um að óhreinindi náist úr tönnunum en ytri hárin eru mjúk og fara vel á milli tanna. ORTODENT tannburstinn kemur einungis með miðlungsstífum innri hárum og mjúkum ytri hárum af ástæðu, það fer einfaldlega betur með glerunginn að sleppa stífum hárum. Við viljum hreinar tennur en við viljum líka fara vel með glerunginn. Of stíf hár og of harkaleg burstun fer einnig illa með tannholdið. |
 |
| Tannlæknar mæla með því að fólk skipti um tannbursta a.m.k. fjórum sinnum á ári. Kannanir sýna hins vegar að margir skipta mun sjaldnar um tannbursta og því er hætta á að tannburstar séu uppfullir af bakteríum. ORTODENT tannburstinn kemur í veg fyrir bakteríuvöxt því í honum eru nanoagnir af gulli eða silfri (fer eftir gerð tannburstans). Nanóagnirnar bjótast inn í bakteríur og trufla þar með kjarnamyndun þeirra og því hindrast vöxtur þeirra. Niðurstöður þessar voru sannprófaðar í rannsóknum í Kóreu þar sem kannaðar voru bakteríur sem safnast upp í tannburstum. |
| |
| |
 |
| Nanóagnirnar komast í snertingu við bakteríurnar, brjótast inn í þær og trufla þannig kjarnamyndun. |
| |
| |
| Til baka á aðalsíðu |